Seinni Hálfleikur
Allar þjónustuleiðir
Þjónusta

Verkjaúrvinnsla: Neðri líkami

Meðferð felur í sér nudd, bandvefslosun, styrktaræfingar, teygjur og öndunaræfingar sem endurheimta hreyfigetu, styrk, eykur liðleika og jafnvægi á sama tíma til að fyrirbyggja.

Meðferðin hentar meðal annars þeim sem glíma við bólgur, stífleika eða verki í mjóbaki og niður sem geta valdið klemmu á taugar eða stífluðu æða og sogæðakerfi

Um meðferðina

Með neðri líkama er átt við svæðið frá mjóbaki og niður; mjóbak og mjaðmagrind, mjaðmir og rassvöðva, læri, hné, kálfa, ökkla og fætur. Verkir og stífleiki á þessum svæðum geta tengst kyrrsetu, einhæfum eða endurteknum hreyfimynstrum, íþróttaiðkun, ójafnvægi í styrk eða hreyfigetu eða áverkum, til dæmis eftir endurtekin meiðsl eða slys.

Í upphafi er farið yfir einkenni, daglegt álag og markmið. Meðferðin er sniðin að stöðu hvers og eins og getur falið í sér nudd, bandvefslosun, teygjur, öndun og vöðvavirkniæfingar. Markmiðið er að draga úr bólgum, spennu eða verkjum og bæta hreyfigetu. Jafnframt eru kenndar fyrirbyggjandi styrktaræfingar sem miða að betri líkamsbeitingu í daglegu lífi.

Meðferðin hentar þeim sem glíma við stífleika, verki eða taugaeinkenni frá mjóbaki og niður, svo sem settaugarverki (sciatica). Einnig er unnið með bandvef og sogæðaflæði þegar einkenni tengjast bjúg, þrota, fótaóeirð eða æðahnútum.

Hvað er innifalið

  • Draga úr verkjum og stífleika.
  • Bæta hreyfigetu og jafnvægi.
  • Efla styrk í mjöðmum og fótleggjum.