Seinni Hálfleikur

Markviss þjálfun.

Skýr leiðsögn. Varanlegur árangur.

Þjálfun sem byggir á skýrri leiðsögn, markvissri uppbyggingu og hreyfingu sem tekur mið af daglegu lífi og ólíkum þörfum. Markmiðið er að skapa sterkari grunn fyrir vinnu, fjölskyldulíf, tómstundir og allt það sem daglegt líf kallar á.

Það er aldrei of seint að koma inn á.

Árangur sem skilar sér utan vallar.

Seinni hálfleikur byggir á þeirri sannfæringu að heilbrigt stoðkerfi sé mikilvægur grunnur að góðu lífi.

Heildræn nálgun.

Hvort sem þú ert að hefja reglulega hreyfingu eða hefur áralanga reynslu er þjálfunin byggð upp út frá þér. Leiðsögnin er persónuleg og byggir á getu, þörfum og markmiðum þínum. ? telja upp öndun., bandvef teygjur og styrk?

Sérsniðið að þér.

Engir tveir byrja á sama stað eða stefna að nákvæmlega sama marki. Þjálfunin tekur mið af stöðu þinni, reynslu og markmiðum og er aðlöguð eftir því sem þú tekur framförum.

Ávinningur í daglegu lífi.

Árangur mælist ekki aðeins í því sem gerist á æfingu heldur einnig í því hvernig þér líður og hvað þú getur gert þess á milli. Markmiðið er aukinn styrkur og hreyfigeta sem nýtist í vinnu, tómstundum og daglegu lífi.

Flautað til leiks!

Svona hefst seinni hálfleikur.

1

Skráningin.

Hægt er að skoða þjónustuleiðir og bóka tíma í gegnum Noona. Ef þú ert óviss um hvað hentar best geturðu einnig sent fyrirspurn í gegnum síðuna.

2

Fyrsti tíminn.

Í fyrsta tímanum fer fram samtal um markmið, þarfir og væntingar ásamt stoðkerfisgreiningu og æfingum sem leggja mikilvægan grunn að farsælli þjálfun.

3

Þjálfunin.

Þjálfunin heldur áfram með reglulegri leiðsögn og uppbyggingu sem tekur mið af framvindu þinni. Á innri vef færðu aðgang að sérvöldum kennslumyndböndum og öðru efni sem styður við þjálfunina þína og auðveldar þér að vinna áfram milli tíma.

Þjónustuleið.

Leikplanið: Skýr leið að þínum markmiðum.

Engir tveir einstaklingar eru eins og því er þjónustan það ekki heldur.
Hvort sem þú vilt byggja upp styrk, bæta hreyfigetu eða draga úr verkjum færðu einstaklingsmiðaða leiðsögn sem byggir á þinni stöðu og þörfum.

Verkjaúrvinnsla: Efri líkami.

Meðferð felur í sér viðtal, nudd, bandvefslosun, styrktaræfingar, teygjur og öndun sem endurheimta hreyfigetu, styrk, eykur liðleika og jafnvægi.

  • Draga úr verkjum og spennu.
  • Bæta hreyfigetu og líkamsbeitingu.
  • Fyrirbyggja með æfingum.
Tímalengd: 60 mín.

Verkjaúrvinnsla: Neðri líkami

Meðferð felur í sér nudd, bandvefslosun, styrktaræfingar, teygjur og öndunaræfingar sem endurheimta hreyfigetu, styrk, eykur liðleika og jafnvægi á sama tíma til að fyrirbyggja.

Meðferðin hentar meðal annars þeim sem glíma við bólgur, stífleika eða verki í mjóbaki og niður sem geta valdið klemmu á taugar eða stífluðu æða og sogæðakerfi

  • Draga úr verkjum og stífleika.
  • Bæta hreyfigetu og jafnvægi.
  • Efla styrk í mjöðmum og fótleggjum.
Tímalengd: 60 mín.

Einkaþjálfun

Þjálfunin sameinar styrktar- og liðleikaþjálfun með nákvæmri leiðsögn og öryggi í fyrirrúmi. Æfingar, álag og hreyfiferlar eru valin út frá þinni stöðu svo þú getir byggt þig upp á öruggan og markvissan hátt. Einkaþjálfun sem hentar hverjum sem er.

  • Skýr leiðsögn.
  • Raunhæf nálgun.
  • Stöðugar framfarir.
Tímalengd: 60 mín.
Algengar spurningar

Algengar spurningar.

Boðið er upp á bæði einkatíma eða þjálfun með öðrum eftir því hvað hentar markmiðum þínum, dagskrá og þörfum

Umsagnir

Það sem leikmenn hafa að segja.

Hver leikmaður á sína sögu. Hér deila nokkrir leikmenn reynslu sinni af námskeiðum og/eða einkatímum.

Gísli Geir Guðmundsson

Gísli Geir Guðmundsson

37

Ég hef ekki verið betri í marga mánuði. Ég svaf mjög vel. Ekkert fundið fyrir tauginni, skapið betra og hressari overall.

Birkir Friðfinnsson

Birkir Friðfinnsson

Frábær yfirferð fyrir stirða karla. Hér er hver á sínum hraða og allir velkomnir. Léttir í líkamanum strax í fyrsta tíma. Takk fyrir mig.

Sigurður Þorsteinsson

Sigurður Þorsteinsson

47 ára

Tryggvi býr yfir mikilli þekkingu og brennur fyrir að hjálpa fólki að ná árangri með líkama og sál. M-in þrjú Mobility & Mental Must fyrir mig. Fràbærir tímar!

Kristján Kristjánsson

Kristján Kristjánsson

49 ára

Einstakir hóptímar með leiðbeinanda sem hefur mikla ástríðu fyrir að hjálpa og koma okkur úr striðu ástandi. Tryggvi passar vel upp á að einstaklingur sem og heildin sé að ná miklum framförum og bata.
Aldrei liði eins vel í eigin í eigin líkama eins og eftir námskeið hjá Tryggva. Hef tekið sama námskeiðið þrisvar í röð er allt sem segja þarf um frábært námskeið þar sem brosið er í fyrirrúmi.

Ívar Freyr Sturluson

Ívar Freyr Sturluson

Einstakt námskeið sem eg mæli með fyrir alla þá sem vilja losa um styrðleika, læra um líkamann og hlægja mikið 😁
Tryggvi fær fullt hús stiga fyrir að vera frábær kennari!

Heiðrekur Guðmundsson

Heiðrekur Guðmundsson

50 ára

Frábært námskeið fyrir alla sem vilja liðka vel allan líkamann og hafa gaman í leiðinni.
Þvílíkur munur á liðleika og hjá mér strax eftir fyrstu vikuna, tala nú ekki um núna eftir 3 vikur.

Magnús Magnússon

Magnús Magnússon

43 ára

Mjög gott námskeið sem virtist henta þeim liðugari jafn vel og mér sem er klárlega meira en að segja það.

Franz Jezorski

Franz Jezorski

59 ára

Þetta er búið að vera algjörlega geggjað samstarf hjá okkur. Kærar þakkir Tryggvi fyrir alla hjálpina og öll góðu ráðin! Ekkert smá sem þú ert búinn að gera fyrir mig. Ég myndi segja að verkjastuðullinn hafi verið í kringum 9/10 þegar ég kom. Hryggurinn var hrikalega viðkvæmur, ég gat ekki einu sinni haldið á innkaupapoka. Ég komst ekki inn og út úr bílnum nema að styðja mig með báðum höndum. Ég gat ekki gert neinar æfingar þar sem reyndi á hrygginn, og varla farið út að ganga með hundinn, þoldi sérstaklega illa hliðarátak á hrygginn, t.d. hnipraði mig saman af sársauka þegar hundurinn kippti í mig til hliðar.

Sigurgeir Ragnarsson

Sigurgeir Ragnarsson

Ótrúlegt dæmi. Smá stífur en engir sérstakir verkir, allt annar eftir þessar 60 mínútur.

Birgir Þorvaldsson

Birgir Þorvaldsson

65 ára

Það besta sem ég hef gert fyrir mig á eftirlaunum. Skapið er svo miklu betra þegar líkaminn lætur að stjórn — og myndböndin heima eru gulls ígildi.