Seinni Hálfleikur
Þjálfarinn

Tryggvi Viðarsson

Þjálfari og stofnandi Seinni hálfleiks.

Ég sérhæfi mig í styrktar- og liðleikaþjálfun fyrir fólk á öllum aldri og með ólíkan bakgrunn. Ég hef starfað við nudd og einkaþjálfun síðan 2018 og frá árinu 2020 hef ég staðið fyrir styrktar- og liðleikanámskeiðinu Losa & brosa fyrir stirða stráka. Einnig hef ég unnið í samstarfi með íþróttafélögum og sjúkraþjálfastöð.

Menntun mín nær meðal annars til 400 klst. jógakennaranáms, náms í tælensku nuddi, Chi Nei Tsang og markþjálfunar frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef einnig sótt framhaldsnám hjá Anatomy Trains og Functional Patterns í fasíufræðum og stunda nú kennaranám hjá Moved Academy.

Ég vinn bæði með einstaklingum og hópum og legg áherslu á skýra leiðsögn, markvissa uppbyggingu og hreyfingu sem nýtist í daglegu lífi. Engin ein leið hentar öllum og því getur nálgunin falist í þjálfun, líkamsvinnu eða samspili beggja eftir þörfum hvers og eins.

"Ég hef brennandi áhuga mannslíkamanum og ástríðu fyrir því að aðstoða sem flest að vera verkjalaus, heilbrigð og hraust í seinni hálfleik."

— Tryggvi

Öryggi

Æfingar og álag taka mið af reynslu og getu hvers og eins.

Sjálfstraust

Undir öruggri leiðsögn öðlast þú skilning á tilgangi æfinganna og sjálstraust til að vinna markvisst og sjálfstætt áfram.

Árangur

Framfarir nást með markvissri uppbyggingu og reglulegri ástundun.