Seinni Hálfleikur
Þjónustuleiðir

Styrkur og liðleiki, fyrir öll

Hver þjónustuleið er hönnuð í kringum ákveðin svæði líkamans — bak, mjaðmir, herðar — og hentar öllum getustigum. Engin inntökuskilyrði.

Verkjaúrvinnsla: Efri líkami.

Með efri líkama er átt við svæðið frá mitti og upp: mjóbak, bak og kvið, brjóstkassa, axlir og handleggi, háls og höfuð. Verkir og stífleiki á þessum svæðum geta tengst streitu, kyrrsetu, tölvu- og símanotkun, einhæfum eða endurteknum hreyfimynstrum, íþróttaiðkun eða áverkum, til dæmis eftir fall eða slys.

Í upphafi er farið yfir einkenni, daglegt álag og markmið. Meðferðin er sniðin að stöðu hvers og eins og getur falið í sér nudd, bandvefslosun, teygjur, öndun og vöðvavirkniæfingar. Markmiðið er að draga úr verkjum og spennu og bæta hreyfigetu. Styrktaræfingar eru kenndar í fyrirbyggjandi tilgangi til að viðhalda árangri og bæta líkamsbeitingu í daglegu lífi.

Þjónustan hentar meðal annars þeim sem glíma við hálsríg, hnakkaspennu, spennutengdan höfuðverk, frosna öxl, tennis- eða golfolnboga, sinaskeiðabólgu eða einkenni eftir hálsáverka (whiplash).

  • Draga úr verkjum og spennu.
  • Bæta hreyfigetu og líkamsbeitingu.
  • Fyrirbyggja með æfingum.
Tímalengd: 60 mín.

Verkjaúrvinnsla: Neðri líkami

Með neðri líkama er átt við svæðið frá mjóbaki og niður; mjóbak og mjaðmagrind, mjaðmir og rassvöðva, læri, hné, kálfa, ökkla og fætur. Verkir og stífleiki á þessum svæðum geta tengst kyrrsetu, einhæfum eða endurteknum hreyfimynstrum, íþróttaiðkun, ójafnvægi í styrk eða hreyfigetu eða áverkum, til dæmis eftir endurtekin meiðsl eða slys.

Í upphafi er farið yfir einkenni, daglegt álag og markmið. Meðferðin er sniðin að stöðu hvers og eins og getur falið í sér nudd, bandvefslosun, teygjur, öndun og vöðvavirkniæfingar. Markmiðið er að draga úr bólgum, spennu eða verkjum og bæta hreyfigetu. Jafnframt eru kenndar fyrirbyggjandi styrktaræfingar sem miða að betri líkamsbeitingu í daglegu lífi.

Meðferðin hentar þeim sem glíma við stífleika, verki eða taugaeinkenni frá mjóbaki og niður, svo sem settaugarverki (sciatica). Einnig er unnið með bandvef og sogæðaflæði þegar einkenni tengjast bjúg, þrota, fótaóeirð eða æðahnútum.

  • Draga úr verkjum og stífleika.
  • Bæta hreyfigetu og jafnvægi.
  • Efla styrk í mjöðmum og fótleggjum.
Tímalengd: 60 mín.

Vinnustofa

Sérhæfðar vinnustofur ýmist fyrir þá sem vilja ná lengra í golfi, padel eða öðru.

    Tímalengd: 60 mín.

    Einkaþjálfun

    Hver tími hefst á einfaldri spurningu: „Hvað viltu fá út úr tímanum í dag?“ Síðan er líkaminn undirbúinn með léttum æfingum sem virkja vöðva og taugakerfi áður en tekið er til við styrktar- og liðleikaþjálfun. Val á æfingum, álagi og hreyfingum tekur mið af stöðu þinni með áherslu á örugga og markvissa uppbyggingu.

    • Skýr leiðsögn.
    • Raunhæf nálgun.
    • Stöðugar framfarir.
    Tímalengd: 60 mín.

    Seinni hálfleikur

    Í þessu námskeiði lærum við æfingar sem virkja og styrkja mikilvægustu vöðva stoðkerfisins á skömmum tíma og teygjuæfingar sem lengja og tengja þetta tvennt saman. Líkamsvitund og líkamsbeitingu.
    Aðgangur að helstu styrtkar og teygjuæfingum á læstu svæði.

    Námskeiðið er 3 vikur. Hittumst 2x í viku í 75 mín í senn.

    • Styrktar og teygjuæfingar í sal með þjálfara.
    • Aðgengi að sal og búningsaðstöðu á æfingatíma.
    • Aðgengi að æfingum á læstu svæði.
    Tímalengd: 75 mín.